Evrópumeistarar Spánverja mæta Perú í vináttulandsleik í Puebla í Mexíkó klukkan 02:00 í nótt.
Þetta er síðasti leikurinn í undirbúningi þjóðanna fyrir heimsmeistaramótið.
Holland og Úsbekistan mætast klukkan 18:45 í kvöld og þá spila Frakkar við Norður-Íra tæpum hálftíma síðar.
Leikir dagsins:
18:45 Holland - Uzbekistan
19:10 Frakkland - Norður Írland
02:00 Perú - Spánn
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!

