Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 08. júní 2026 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Yamal þroskast mikið - „Ég hefði ekki skilið gildi þess að vinna Ballon d'Or“
Lamine Yamal
Lamine Yamal
Mynd: EPA
Ousmane Dembele vann Ballon d'Or á síðasta ári
Ousmane Dembele vann Ballon d'Or á síðasta ári
Mynd: EPA
Spænski vængmaðurinn Lamine Yamal segist ánægður að Ousmane Dembele hafi unnið Ballon d'Or verðlaunin á síðasta ári því hann hafi sjálfur ekki verið nógu þroskaður til þess að vinna þau.

Þessi 18 ára gamli leikmaður átti frábært ár en var þó ekki valinn fram yfir Dembélé, sem varð Evrópumeistari með Paris Saint-Germain.

Yamal mun að öllum líkindum vinna verðlaunin í framtíðinni enda eru hæfileikar hans ótrúlegir. Hann var hins vegar glaður fyrir hönd Dembélé, sem hann segir vera góðan vin sinn.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá var ég viss um að ég myndi vinna verðlaunin vegna alls sem hafði gerst. Þegar ég horfi til baka held ég hins vegar að það hafi verið gott fyrir mig að Dembélé hreppti þau.

„Það hjálpaði mér ekki bara að þroskast heldur held ég að þetta hafi ekki verið rétti tíminn fyrir mig til að vinna þau. Ég var ennþá bara krakki og hefði líklega ekki kunnað að meta hvað það þýðir í raun og veru að vinna Ballon d'Or. Sjáum til hvort þetta verði mitt ár.

„Ég og Ousmane Dembélé náum mjög vel saman. Við höfum eytt tíma saman og rætt mikið. Um daginn heyrði hann í mér og spurði hvað væri að frétta. Ég hef þroskast mikið og breytt mörgu í lífi mínu síðan ég var á verðlaunahátíð Ballon d'Or.

„Ég er ótrúlega ánægður með að hann hafi unnið verðlaunin. Við vorum líka saman á Globe Soccer-verðlaunahátíðinni í Dúbaí og það er alveg ljóst að við eigum mjög gott samband. Við heyrumst reglulega,“
sagði Yamal.

Yamal kemur til greina í ár en hann mun þurfa að berjast aftur við Dembele ásamt þeim Harry Kane, Vitinha og Michael Olise.
Slapp
banner
banner