Fotbolti.net
08.09.18 - 19:09
Arnar Helgi Magnússon

Xhaka: Eftir að við skorum þriðja markið er leikurinn búinn

Auglýsing
Xhaka (til vinstri) var fyrirliði Sviss í dag.

Xhaka (til vinstri) var fyrirliði Sviss í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Granit Xhaka leikmaður Arsenal og Sviss átti stórleik á miðjunni í kvöld þegar Svissnenska landsliðið tók það íslenska í kennslustund í fyrsta leik beggja liða í Þjóðardeildinni.

Fótbolti.net heyrði í Xhaka eftir leikinn en eins og sjá má og heyra þá er hann ekki jafnsterkur í enskunni eins og hann var í leiknum í kvöld.
„Þetta var mikilvægur sigur í dag þar sem að þetta var fyrsti leikur í nýrri keppni. Við spiluðum mjög góðan leik í dag og 6-0 eru góð úrslit.\"

„Við töluðum um það í hálfleik að koma skynsamir út í síðari hálfleik en eftir að við náðum að skora þriðja markið þá var leikurinn búinn.\"

„Við vitum að Ísland er með gott lið eins og þeir hafa sýnt á síðustu árum en í dag vorum við betra liðið.\"

Viðtalið við Xhaka má sjá í heild sinni hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.