Fotbolti.net
15.07.26 - 19:20
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Trossard til Besiktas (Staðfest)

Trossard til Besiktas (Staðfest)
Canon

Mynd: Besiktas

Leandro Trossard er genginn til liðs við Besiktas frá Arsenal. Sky Sports greinir frá því að kaupverðið er 17 milljónir punda.

Hann skrifar undir þriggja ára samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.
Trossard er 31 árs en hann gekk til liðs við Arsenal frá Brighton í janúar 2023. Hann spilaði 174 leiki fyrir liðið, skoraði 36 mörk og lagði upp 34. Hann var hluti af liðinu sem vann úrvalsdeildina á síðustu leiktíð.

„Allir hjá Arsenal vilja þakka Leo fyrir hans verðmæta framlag til félagsins og óska honum alls hins besta í framtíðinni," segir í yfirlýsingu frá Arsenal.

Besiktas hafnaði í 4. sæti tyrkensku deildarinnar á síðustu leiktíð, 17 stigum á eftir Galatasaray sem fagnaði titilinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.