08.09.26 - 12:06
Elvar Geir Magnússon
Ancelotti yngri hrósar Hákoni - „Þarf ekki að ýta neitt á eftir honum“

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: EPA
Meistaradeildin hefst í kvöld. Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson og félagar í Lille fá spænska liðið Real Betis í heimsókn.
Davide Ancelotti, þjálfari Lille, hrósar Hákoni fyrir öfluga byrjun á tímabilinu. Davide er sonur Carlo Ancelotti og tók við Lille í sumar. Akurnesingurinn hefur þegar náð að heilla hann.

TENGT EFNI
Meistaradeildin í dag - Veislan er að byrja
„Hann er leikmaður sem ég þarf ekki að ýta á eftir því hann er mjög vinnusamur og leggur sig allan fram. Hann býr yfir gríðarlegri orku og keyrir sig allan út. Ég er virkilega ánægður með að hafa hann innan okkar raða," segir Ancelotti um Hákon.
Í umfjöllun Eurosport er þó talað um að Hákon geti enn bætt nokkra þætti hjá sér og þar á meðal sé stöðugleikinn, hann hafi átt kafla á síðasta tímabili þar sem hann fann sig ekki nægilega vel.
„Ég er hérna til að hjálpa honum að bæta sig og styðja við feril hans sem á eftir að verða frábær. Ég er nú þegar hæstánægður með framlag. Auðvitað reynum við alltaf að gera betur og hann er líka alltaf að reyna að bæta sig," segir Ancelotti.