Fotbolti.net
08.09.26 - 10:01
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalski boltinn

Gattuso: Albert getur spilað hvar sem er

Gattuso: Albert getur spilað hvar sem er
Canon

Mynd: EPA

Albert Guðmundsson skoraði sigurmark Lazio gegn Udinese í 3. umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar í gærkvöldi.

Leikurinn var sá fyrsti hjá Alberti fyrir Lazio eftir komuna á láni frá Fiorentina.

Eins og við Íslendingar vitum þá er Albert fjölhæfur sóknarmaður og Gennaro Gattuso, stjóri Lazio, segir að Albert geti spilað úti um allt á vellinum.
Albert: Ég hefði ekki getað beðið um meira
TENGT EFNI

Albert: Ég hefði ekki getað beðið um meira

„Hann getur spilað hvar sem er: ég prófaði hann sem falska níu, á vængnum í stað Zaccagni og sem framherji," sagði Gattuso eftir leikinn.

Sigurmarkið kom undir lok leiks og er Lazio með fullt hús stiga eftir leikina þrjá.

Í viðtali við heimasíðu Lazio sagði Albert að hann vildi bara vera á vellinum, en ef hann fengi að velja væri hann sóknarsinnaður; „trequartista" eða „mezzala".
Gattuso: Albert getur spilað hvar sem er
Canon

Mynd: EPA

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Inter7+1219
2Lazio7+1019
3Roma7+1317
4Milan7+715
5Como7+514
6Frosinone7+413
7Torino8+213
8Cagliari7-113
9Juventus7+111
10Napoli7+310
11Atalanta7-19
12Lecce7-39
13Sassuolo7-28
14Monza8-37
15Bologna7-45
16Udinese7-74
17Genoa7-84
18Fiorentina7-94
19Parma7-94
20Venezia7-103
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.