Fotbolti.net
08.09.26 - 12:23
Kári Snorrason

Hvað höfum við lært í Bestu deildinni?

Óskar lært að stýra álaginu.

Óskar lært að stýra álaginu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefðbundið 22 leikja mót í Bestu deildinni er að baki og tekur tvískiptingin við um næstu helgi.

Mikil spenna er í botnbaráttunni og eru Víkingar með átta stiga forystu á toppi deildarinnar.

Mikið hefur gengið á í fyrstu 22 umferðunum og því vel við hæfi að líta yfir farinn veg og draga lærdóm af því sem gerðist í deildinni í sumar.
Ráðgjafafyrirtækið kannski ekki svo sniðugt
Sænska ráðgjafafyrirtækið GoalUnit kom eins og stormsveipur inn í íslenskan fótbolta fyrir tímabil og var mikið á milli tannana á fólki.

FH, Valur og Breiðablik voru þau lið sem voru hvað mest í umræðunni yfir félög sem nýttu krafta sænska fyrirtækisins. Óhætt er að segja að gengi þessara þriggja liða hafi verið langt undir væntingum á tímabilinu.

Breiðablik er í 4. sæti deildarinnar, 23 stigum á eftir toppliði Víkings. Þá er Valur í 8. sæti deildarinnar og leikur í neðri hlutanum. FH er í mikilli fallbaráttu og er sem stendur einu stigi frá fallsæti.

Álögunum aflétt
KR, eins og eflaust flestum liðum, finnst fátt skemmtilegra en að skora mörk. Liðið hefur skorað 74 mörk á tímabilinu, sjö mörkum meira en topplið Víkings.

Hlutskarpastur í liði KR á tímabilinu er fyrirliðinn Aron Sigurðarson en hann hefur skorað 20 mörk.

Aron er sá fyrsti til að skora 20 mörk í 22 leikjum en gamla markametið, 19 mörk, var sett í 18 og síðan 22 leikja móti.

Varnaglinn frábær nagli
Mikið var rætt um gífurlega breidd Víkings komandi inn í tímabilið og settu margir spurningamerki við stærð hópsins og voru stórir póstar geymdir utan hóps í byrjun móts.

Stærð hópsins var með Evrópu í huga og hugsanleg meiðsli leikmanna og reyndist það hárrétt metið hjá Kára Árnasyni, yfirmanni fótboltamála Víkings.

„Ég hef aldrei vitað annað eins, en þetta er ástæðan fyrir því að við erum með stóran hóp," sagði Kári sjálfur í viðtali við Fótbolta.net á dögunum.

Þeir Óskar Borgþórsson, Tarik Ibrahimagic, Elías Már Ómarsson og Sveinn Gísli Þorkelsson verða að öllum líkindum ekki meira með á tímabilinu. Þá yfirgaf Gunnar Vatnhamar félagið þegar búið var að skella sumarglugganum á Íslandi í lás. Ingvar Jónsson greindist með krabbamein snemma móts og hefur því ekki verið með.

Minna er oft meira
Undir stjórn Rúnars Kristinssonar hefur Fram tekið greinileg skref upp á við með hverju tímabilinu. Fyrir tímabilið var liðinu spáð 8. sæti deildarinnar, en Framarar enduðu að lokum í 2. sæti í venjulegri deildarkeppni.

Framarar létu ekki mikið fyrir sér fara á leikmannamarkaðnum fyrir tímabilið, en helstu styrkingar liðsins voru þeir Ægir Jarl Jónasson og Atli Þór Jónasson.

Ægir Jarl virðist hafa verið púslið sem vantaði og hefur hann verið frábær á tímabilinu. Atli Þór kom einnig sterkur inn í liðið en hefur nú verið lengi frá vegna meiðsla.

Borgar sig ekki að lenda í slagsmálum
Þann 27. júlí birtist frétt á Fótbolta.net þar sem greint var frá því að slagsmál og nefbrot hefðu verið á æfingu Keflavíkur.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net sló Alpha Conteh til Muhamed Alghoul og fór það svo að sá síðarnefndi nefbrotnaði. Í kjölfarið var unnið í málinu innanbúðar og tóku leikmennirnir nokkra sáttafundi til að leysa úr málinu.

Frá því að atvikið kom upp hefur verulega dregið undan Conteh og hefur hann spilað fimm leiki frá því að áflogin áttu sér stað. Í þeim leikjum hefur Conteh fengið eitt rautt spjald og hvorki skorað né lagt upp eitt mark.

Tomic undantekningin sem sannar regluna
Serbneskir andar svifu yfir vötnum Vestmannaeyja fyrir tímabil þar sem Serbinn Aleksandar Linta hafði tekið við liðinu um veturinn.

Hann fékk tvo Serba til liðs við Eyjamenn skömmu fyrir mót, þá Filip Stuparevic og Milan Jezdimirovic. Óhætt er að segja að þeir komu ekki með neitt að borðinu og yfirgáfu þeir báðir félagið þegar stutt var liðið á mótið.

Eini Serbinn sem er eftir í leikmannahópi ÍBV er Milan Tomic og hefur hann verið í stórri rullu á tímabilinu en hann gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil.

Leiðarljósið óljóst
Sumarið í Garðabæ jafnast á við hina bestu sápuóperu. Allt frá þeim sögusögnum um að leikmenn hafi fellt tár þegar Jökull var látinn taka poka sinn og í það að Jón Þór sakaði eigin aðstoðarmenn um að grafa undan sér.

Þriðja þjálfarateymi Garðbæinga í sumar var myndað fyrir fáeinum vikum og eru nú þrír þjálfarar sem eru skráðir aðalþjálfarar á skýrslu.

Það vekur athygli að Hákon Ernir Haraldsson, sem er fæddur árið 2003, mætir í viðtöl eftir leiki í stað Olgeirs Sigurgeirssonar eða Brynjars Kristmundssonar sem eru báðir reynslumeiri á því sviði.

Stuðningsmenn Stjörnunnar hafa margir hverjir sagt stefnuleysi einkenna félagið; „Ferðalög sem hafa markmið en engin gildi eða tilgang eru dæmd til að mistakast,“ sagði Þorkell Máni Pétursson í viðtali við Fótbolta.net eftir að Jón Þór var látinn fara.

Óskar lært að stýra álaginu
Meiðsli settu stórt strik í reikninginn hjá KR-ingum á síðustu leiktíð á tímabili sem einkenndist af miklum vonbrigðum. Liðið bjargaði sér frá falli í lokaumferðinni með sigri á Vestra á Ísafirði.

Gleðin hefur verið töluvert meiri í sumar og má þar jafnframt benda á að meiðsli lykilmanna hafa verið mun minni en árið áður.

Í viðtali við Fótbolta.net fyrir mót sagði Óskar bara keyra áfram þegar enginn stoppar hann af og sagðist hafa róað sig þegar kemur að lengd æfinga á undirbúningstímabilinu.

Kostur að mæta með mótað lið
Keflvíkingum var spáð í botnsæti deildarinnar fyrir tímabil og var góð innistaða fyrir þeirri spá. Liðið endaði í 5. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili og rétt skriðu inn í umspilið.

Gengi Keflvíkinga hefur komið eflaust flestum á óvart en liðið er í 6. sæti deildarinnar, tveimur stigum frá 4. sæti. Það sem Keflvíkingar höfðu fram yfir önnur lið sem var spáð neðarlega í deildinni er að liðið þeirra var nánast fullmótað komandi inn í mótið.

Sama má ekki segja um Þór, KA og FH. Fimleikafélagið styrkti sig með reynslu og Þórsarar eru að finna liðið sitt núna þegar farið er að hausta.
Gengi FH batnaði til muna eftir að liðið sótti reynslu í sumarglugganum.

Gengi FH batnaði til muna eftir að liðið sótti reynslu í sumarglugganum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sá fyrsti til að skora 20 mörk í 22 leikjum.

Sá fyrsti til að skora 20 mörk í 22 leikjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már sleit krossband um mitt sumar.

Elías Már sleit krossband um mitt sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar styrktu sig vel fyrir mót.

Víkingar styrktu sig vel fyrir mót.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frömurum var spáð 8. sæti fyrir tímabil.

Frömurum var spáð 8. sæti fyrir tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dregið undan Conteh eftir slagsmálin.

Dregið undan Conteh eftir slagsmálin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Serbarnir tveir sem Linta sótti komu með lítið að borðinu.

Serbarnir tveir sem Linta sótti komu með lítið að borðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikið gengið á í Garðabænum í sumar.

Mikið gengið á í Garðabænum í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Þór var látinn fara í síðasta mánuði.

Jón Þór var látinn fara í síðasta mánuði.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Minna um meiðsli hjá KR í ár en í fyrra.

Minna um meiðsli hjá KR í ár en í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Keflvíkingar mættu tilbúnir í mótið.

Keflvíkingar mættu tilbúnir í mótið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.