Fotbolti.net
23.10.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon
Franski boltinn

Lögreglan lætur færa leik PSG

Blys á Prinsavöllum.

Blys á Prinsavöllum.

Canon

Mynd: EPA

Búið er að færa deildarleik Paris St-Germain gegn Lyon að beiðni lögreglunnar. Gríðarleg mótmæli framhaldsskólanema hafa verið í Frakklandi og af þeim hafa sprottið miklar óeirðir; ofbeldi og skemmdarverk.

Leiknum hefur verið frestað um sólarhring, þannig að hann fer fram á mánudagskvöld.
Frönsk yfirvöld vinna nú að umfangsmiklum öryggisráðstöfunum vegna mótmæla sem fyrirhuguð eru um helgina.

Lögregluaðgerðir verða enn flóknari vegna NFL-leiks milli Pittsburgh Steelers og New Orleans Saints á Stade de France, viðburðar sem krefst mikils viðbúnaðar lögreglu.

Frakklands- og Evrópumeistarar PSG sitja í öðru sæti deildarinnar eftir sjö leiki, en Lyon er á toppnum með 14 stig, jöfnmörg stig og PSG en er ofar á markatölu.

Ligue 1 - karlar

#LiðLmunStig
1Lyon7+814
2PSG7+514
3Paris FC7+514
4Lille7+514
5Mónakó7+414
6Rennes7+113
7Lorient7+111
8Lens7+310
9Marseille7+49
10Brest7+39
11Toulouse7+19
12Auxerre7-69
13Nice7-38
14Strasbourg7-37
15Angers7-67
16Le Mans7-56
17Troyes7-114
18Le Havre7-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.