Fotbolti.net
23.10.26 - 15:23
Elvar Geir Magnússon

Alonso um Penders: Courtois sér líkindi sjálfur

Penders kom inn af bekknum þegar Martínez kjálkabrotnaði gegn Everton.

Penders kom inn af bekknum þegar Martínez kjálkabrotnaði gegn Everton.

Canon

Mynd: EPA

Argentínski markvörðurinn Emiliano Martínez kjálkabrotnaði í sigri Chelsea gegn Everton um síðustu helgi:

„Hann hefur gengist undir aðgerð. Honum líður betur með hverjum deginum sem líður. Þetta tekur nokkrar vikur, vonandi frekar færri en fleiri," segir Xabi Alonso, stjóri Chelsea.
Martínez kjálkabrotnaði í sigrinum - Fór beint í aðgerð
TENGT EFNI

Martínez kjálkabrotnaði í sigrinum - Fór beint í aðgerð

Hinn 21 árs gamli belgíski markvörður Mike Penders mun byrja í markinu gegn Tottenham í síðdegisleiknum á morgun. Hann lék á láni hjá Strasbourg á síðasta tímabili.

„Hann er tilbúinn. Hann hefur æft vel og spilað nokkra bikarleiki þar sem hann hefur sýnt hvað hann getur. Við erum með leikmannahóp sem getur tekist á við svona aðstæður. Mike er markvörður fyrir nútíðina og framtíðina; hann er að læra af reyndum markverði í Emi. Við erum ánægðir með Mike, hann er vel undirbúinn," segir Alonso.

Sér Alonso líkindi með Penders og landa hans, Thibaut Courtois, sem einnig lék með Chelsea?

„Já, ýmislegt. Ekki bara vegna þjóðernisins; þeir eru svipaðir í vexti, báðir örvfættir og báðir ráða vel við háa bolta. Ég ræddi við Thibaut á heimsmeistaramótinu og jafnvel hann sagðist sjá líkindi með sér og Mike.“

Þá greindi Alonso frá því að bakvörðurinn Malo Gusto sé klár í slaginn en Pep Chavarria er ekki orðinn leikfær.
Penders í leik með Strasbourg.

Penders í leik með Strasbourg.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City7+1221
2Arsenal7+618
3Brighton7+1816
4Chelsea7+413
5Liverpool7+112
6Brentford7+510
7Leeds7+310
8Everton7+110
9Hull City7+19
10Ipswich Town7-49
11Newcastle7-48
12Aston Villa7-48
13Man Utd707
14Crystal Palace7-87
15Bournemouth7-46
16Tottenham7-46
17Coventry7-86
18Fulham7-35
19Nott. Forest7-45
20Sunderland7-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.