Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 08. október 2019 12:01
Magnús Már Einarsson
Alexander Groven ekki áfram hjá KA
Alexander Groven á sprettinum.
Alexander Groven á sprettinum.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Norski bakvörðurinn Alexander Groven verður ekki áfram hjá KA á næsta tímabili en þetta staðfesti Sævar Pétursson framkvæmdastjóri félagsins í samtali við Fótbolta.net í dag.

Groven kom til KA síðastliðinn vetur og gerði þá tveggja ára samning við félagið.

Groven á núna von á barni með unnustu sinni og því er hann á leið aftur heim til Noregs.

Hinn 27 ára gamli skoraði eitt mark í þrettán leikjum í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Spænski sóknarmiðjumaðurinn David Cuerva verður heldur ekki áfram hjá KA en aðrar breytingar á leikmannahópnum eru ekki komnar í ljós.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner