Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 08. október 2019 10:54
Brynjar Ingi Erluson
Haraldur Björnsson framlengir við Stjörnuna
Haraldur Björnsson
Haraldur Björnsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Björnsson, markvörður Stjörnunnar, hefur framlengt samning sinn við félagið út tímabilið 2022.

Haraldur, sem er 30 ára gamall, gekk til liðs við Stjörnuna frá Lilleström árið 2017 en hann gerði þá tveggja ára samning.

Samningur hans átti að renna út í næstu viku en nú hefur hann framlengt til ársins 2022.

Hann hefur staðið vaktina í marki Stjörnunnar síðustu ár og hefur spilað lykilhlutverk þar.

Haraldur lék alla leiki Stjörnunnar í Pepsi Max-deildinni í sumar.

Hann á að baki 1 A-landsleik og 27 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.


Athugasemdir
banner
banner
banner