Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 08. október 2019 10:49
Brynjar Ingi Erluson
Kristinn Kjærnested hættir sem formaður KR - 20 ára farsælt samstarf
Kristinn Kjærnested
Kristinn Kjærnested
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Kristinn og Skúli Jón Friðgeirsson gátu fagnað vel í sumar
Kristinn og Skúli Jón Friðgeirsson gátu fagnað vel í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri á næsta aðalfundi sem fer fram í febrúar á næsta ári.

Kristinn hóf störf sem formaður KR árið 1999 en það ár varði meistaraflokkur karla- og kvenna bikar- og deildarmeistari. Karlaliðið hafði ekki unnið Íslandsmeistaratitilinn í 31 ár.

Hann hefur ákveðið að sækjast ekki eftir endurkjöri til formanns knattspyrnudeildar KR í febrúar og hefur hann sent frá sér tilkynningu þar sem hann þakkar kærlega fyrir sig.

Á tíma hans hjá KR varð meistaraflokkur karla sjö sinnum Íslandsmeistari og fimm sinnum bikarmeistari. Í kvennaflokki varð liðið þrisvar sinnum Íslandsmeistari og fjórum sinnum bikarmeistari.

Tilkynningin:

Kveðja frá formanni knattspyrnudeildar:

Kæru KR-ingar,

Ótrúlegu tímabili er nýlokið hvar við jöfnuðum í karlaboltanum okkar eigið stigamet (ásamt Stjörnunni) og settum um leið nýtt met með því að vinna mótið með 14 stiga mun sem aldrei áður hefur gerst í 12 liða deild. Algjörlega frábær árangur hjá strákunum.

Stelpurnar voru svo aðeins hársbreidd frá bikarmeistartitli.

3. flokkur karla landaði Íslandsmeistaratitli með 5-1 stórsigri gegn Fjölni. Framtíðin er björt.

Að því sögðu vil ég tilkynna að ég mun ekki sækjast eftir endurkjöri á næsta aðalfundi knattspyrnudeildar KR sem verður í febrúar á næsta ári.

Ég hóf stjórnunarstörf mín fyrir KR á 100 ára afmæli okkar árið 1999. Það er óhætt að segja að byrjunin hafi verið draumi líkust og tilfinningin ólýsanleg það herrans ár er báðir meistaraflokkarnir unnu tvöfalt.

Nú 20 árum síðar fögnum við svo mögnuðu afreki strákanna. Eftir eyðirmerkurgönguna löngu datt í hús um daginn 7. Íslandsmeistaratitillinn frá aldarafmæli félagsins. Bikartitlarnir frá sama tímamarki eru einnig nokkrir, eða 5 talsins. Ég er stoltur að hafa fengið að vera þátttakandi í þeirri vegferð og gríðarlega þakklátur að mér hafi verið treyst fyrir formennsku frá árinu 2008.

Þakkir miklar sendi ég fjölskyldunni minni, öllum vinum mínum í KR, kollegum sem hafa verið með mér í stjórn deildarinnar, starfsfólki, þjálfurum, leikmönnum, mökum og öllum þeim stórkostlegu sjálfboðaliðum KR sem alltaf er hægt að treysta á og leita til. Við erum ein stór fjölskylda. Einnig vil ég þakka öllum þeim fjölmiðlamönnum sem maður hefur kynnst í gegnum tíðina fyrir afar ánægjuleg samskipti. Samstarfsaðilum og velunnurum knattspyrnudeildar KR færi ég mínar bestu þakkir fyrir ómetanlegan stuðning.

Risa þakkir fá svo okkar stórkostlegu stuðningsmenn og áhorfendur sem alltaf mæta og hvetja lið okkar í gegnum súrt og sætt.

Að lokum vil ég þakka yfirmanni mínum Birni Einarssyni hjá TVG-Zimsen fyrir stuðning og skilning í gegnum tíðina.

TAKK KR !

Íslandsmeistarakveðja,
Kiddi
Athugasemdir
banner
banner
banner