Tonali ofarlega á lista Man Utd - Chiesa gæti farið til Ítalíu - Tottenham ætlar ekki að kaupa Kolo Muani
   mán 09. febrúar 2026 13:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Svona er aldursdreifingin í hópnum - Átta aldrei spilað landsleik
Emil Atlason, markakóngur Bestu deildarinnar 2024, hefur ekki spilað A-landsleik á ferlinum.
Emil Atlason, markakóngur Bestu deildarinnar 2024, hefur ekki spilað A-landsleik á ferlinum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Baldur Kári er einn af þremur leikmönnum í hópnum sem eru gjaldgengir í U21 landsliðið.
Baldur Kári er einn af þremur leikmönnum í hópnum sem eru gjaldgengir í U21 landsliðið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Gunnlaugsson valdi í dag tuttugu manna landsliðshóp fyrir vináttulandsleikinn gegn Mexíkó sem fram fer í Queretaro í Mexíkó, leikurinn hefst klukkan 02:00 aðfaranótt 26. febrúar.

Þrír leikmenn í hópnum eru gjaldgengir í U21 landsliðið, allir eru þeir fæddir eru árið 2005 og hafa verið í stórum hlutverkum í sínum liðum í Bestu deildinni.

Átta leikmenn eru á bilinu 25 ára (á árinu) til 30 ára (á árinu). Níu leikmenn eru svo á bilinu 32 ára (á árinu) til 37 ára (á árinu). Guðmundur Kristjánsson og Gylfi Þór Sigurðsson eru aldursforsetar í hópnum. Átta leikmenn í hópnum eiga ekki A-landsleik á ferilskránni.

Gjaldgengir í U21
Baldur Kári Helgason (2005) (14 yngri landsleikir)
Haukur Andri Haraldsson (2005) (22 yngri landsleikir)
Ágúst Orri Þorsteinsson (2005) (28 yngri landsleikir)

1996-2001
Karl Friðleifur Gunnarsson (2001) (30 yngri landsleikir)
Viktor Freyr Sigurðsson (2000) (0 landsleikir)
Kolbeinn Þórðarson (2000) (3 landsleikir)
Valdimar Þór Ingimundarson (1999) (2 landsleikir)
Helgi Guðjónsson (1999) (12 yngri landsleikir)
Daníel Hafsteinsson (1999) (1 landsleikur)
Hans Viktor Guðmundsson (1996) (12 U21 leikir)
Birnir Snær Ingason (1996) (1 landsleikur)

1989-1994
Anton Ari Einarsson (1994) (2 landsleikir)
Höskuldur Gunnlaugsson (1994) (8 landsleikir)
Aron Elís Þrándarson (1994) (17 landsleikir)
Aron Sigurðarson (1993) (8 landsleikir)
Emil Atlason (1993) (12 U21 leikir)
Guðmundur Þórarinsson (1992) (15 landsleikir)
Damir Muminovic (1990) (6 landsleikir)
Guðmundur Kristjánsson (1989) (6 landsleikir)
Gylfi Þór Sigurðsson (1989) (82 landsleikir)
Athugasemdir
banner
banner