09.03.21 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Arian Ari og Ágúst Unnar í ÍR (Staðfest)

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR

Mynd: ÍR
ÍR var að bæta tveimur strákum við leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í 2. deildinni.
Annar heitir Arian Ari Morina og er fæddur 1999. Hann á rúmlega 30 leiki að baki fyrir HK og gerði 5 mörk í 11 leikjum að láni hjá Ými í 4. deildinni í fyrra. Arian Ari er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við ÍR.
„Arian byrjaði að æfa hjá okkur í byrjun árs og var í mjög lélegu standi, en sýndi strax mikinn metnað innan sem utan vallar í öllu því sem lagt var fyrir hann. Þetta hugarfar og hungur í að sanna sig uppá nýtt sannfærði mig um að hann væri rétti maðurinn til að auka samkeppnina í fremstu stöðum. Með þessu áframhaldi mun hann klárlega eiga stóran þátt í að hjálpa okkur að ná okkar markmiðum," sagði Arnar Hallsson þjálfari ÍR.
Ágúst Unnar Kristinsson, fæddur 2001, er uppalinn hjá Breiðabliki og er einnig búinn að gera þriggja ára samning við ÍR. Ágúst Unnar hefur aldrei spilað keppnisleik með meistaraflokki en lék upp alla yngri flokkana hjá Blikum. Ágúst Unnar getur bæði spilað sem hægri og vinstri bakvörður.
„Ég vænti mikils af Ágústi á næstu árum. Hann hefur bætt sig mikið á þessum skamma tíma sem hann hefur verið í félaginu og það veit á gott. Ágúst leggur sig allan fram bæði á æfingum og í leikjum. Hans hugarfar er til fyrirmyndar og það í bland við hæfileika hans heillaði okkur," sagði Arnar Halls.
Arian Ari og Ágúst Unnar skoruðu báðir í 3-0 sigri ÍR á Reyni um helgina og eru Breiðhyltingar vongóðir um framhaldið.