09.03.21 - 18:30
Ívan Guðjón Baldursson
Noble framlengir við West Ham - Hættir eftir næstu leiktíð (Staðfest)

Noble hefur skorað 60 mörk í 520 leikjum hjá West Ham.

Mynd: Getty Images

Mark Noble fyrirliði West Ham United er búinn að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár.
Þessi 33 ára gamli miðjumaður er gríðarlega mikilvægur leiðtogi og hefur mikil áhrif á liðsandann hjá Hömrunum.
Hann hefur verið hjá West Ham allan atvinnumannaferilinn og á 520 keppnisleiki að baki fyrir félagið, þar af 35 á síðustu leiktíð og 18 á yfirstandandi leiktíð.
„Ég vildi skrifa þetta bréf persónulega til að láta ykkur vita að ég er gríðarlega ánægður með að hafa komist að samkomulagi við West Ham United um að framlengja samninginn minn til sumarsins 2022," skrifaði Noble í löngu bréfi á vefsíðu West Ham.
„Ég hef einnig ákveðið að 2021/22 tímabilið verður mitt átjánda og síðasta tímabil sem leikmaður West Ham United. Ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér eftir það."