Fotbolti.net
09.03.21 - 16:30
Magnús Már Einarsson

Vice Kendes aftur í Fjarðabyggð (Staðfest)

Heimir Þorsteinsson þjálfari Fjarðabyggðar.

Heimir Þorsteinsson þjálfari Fjarðabyggðar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjarðabyggð hefur fengið króatíska sóknarmanninn Vice Kendes aftur í sínar raðir.

Vice skoraði sex mörk í níu leikjum í 2. deildinni með Fjarðabyggð fyrri hlutann á síðasta tímabili.
Þaðan fór Vice til Fuzinar í B-deildinni í Slóveníu þar sem hann hefur skorað sex mörk í níu leikjum í vetur.

Vice er 26 ára gamall en hann hefur á ferli sínum meðal annars spilað í efstu og næstefstu deild í Króatíu.

Heimir Þorsteinsson tók við þjálfun Fjarðabyggðar á nýjan leik í vetur af Dragan Stojanovic sem hefur stýrt liðinu undanfarin ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.