Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 09. mars 2021 07:30
Victor Pálsson
West Ham reynir að framlengja við Noble
Mynd: Getty Images
West Ham er í viðræðum við fyrirliða sinn Mark Noble um að framlengja samning leikmannsins.

Sky Sports greinir frá þessu en Noble gaf í skyn fyrr á tímabilinu að hann gæti hætt eftir leiktíðina.

Samkvæmt Sky eru þó viðræður í gangi á milli beggja aðila en samningur Noble rennur út í sumar.

Miðjumaðurinn á að baki yfir 500 leiki fyrir West Ham en hefur aðeins spilað 16 leiki í öllum keppnum á tímabilinu.

David Moyes vill þó halda þessum 33 ára gamla leikmanni sem er mikilvægur leiðtogi innan sem utan vallar.
Athugasemdir
banner
banner