Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 09. apríl 2021 20:43
Victor Pálsson
Keflavík samdi við tvo erlenda leikmenn (Staðfest)
Mynd: Keflavík
Kvennalið Keflavíkur hefur samið við tvo leikmenn en þetta kemur fram í tilkynningu félagsins í kvöld.

Annar leikmaðurinn heitir Tiffany Sornpao en hún er 23 ára gömul og kemur frá Bandaríkjunum og Tælandi.

Tiffany er markvörður og hefur spilað fjóra landsleiki fyrir Tæland á ferlinum.

Hin heitir Abby Carchio en hún er 24 ára gömul og getur leyst bæði stöðu miðjumanns sem og sóknarmanns.

Abby spilaði með Brown háskólanum í Bandaríkjunum en lék síðast í Litháen og tók þar þátt í Meistaradeild Evrópu.

Athugasemdir
banner
banner