Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 09. apríl 2021 21:02
Victor Pálsson
Þorleifur lánaður í Víking Ó. (Staðfest)
Mynd: Duke
Þorleifur Úlfarsson hefur skrifað undir lánssamning við Víking Ólafsvík og mun leika með liðinu í Lengjudeildinni í sumar.

Þetta kemur fram í tilkynningu Víkinga í kvöld en Þorleifur kemur til félagsins á láni frá Breiðablik.

Um er að ræða tvítugan framherja sem spilaði með Víkingum á láni seinni hluta síðasta tímabils. Þar skoraði Þorleifur eitt mark í fimm leikjum.

Þorleifur spilaði með Duke í bandaríska háskólaboltanum í sumar og stóð sig með prýði.

Þorleifur á að baki leiki fyrir Augnablik í meistaraflokki og skoraði sex mörk í átta leikjum í þriðju deildinni í fyrra.
Athugasemdir
banner
banner