09.06.15 - 11:41
Magnús Már Einarsson
Dani Alves áfram hjá Barcelona (Staðfest)

Fer ekki fet.

Mynd: Getty Images

Fer ekki fet.

Mynd: Getty Images
Hægri bakvörðurinn Dani Alves hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Barcelona.
Í vetur greindi Alves frá því að hann myndi fara frá Barcelona þegar samningur hans við félagið myndi renna út í sumar.
Hinn 32 ára gamli Alves var meðal annars sterklega orðaður við Manchester United sem og fleiri félög.
Alves hefur nú ákveðið að halda tryggð við Barcelona og leika áfram með liðinu næstu tvö tímabilin.