09.06.15 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Sami Khedira í Juventus (Staðfest)

Öflugur.

Mynd: Getty Images

Öflugur.

Mynd: Getty Images
Ítölsku meistararnir í Juventus hafa krækt í miðjumanninn Sami Khedira frá Real Madrid.
Khedira hefur gert fjögurra ára samning við Juventus en samningurinn tekur gildi þegar samningur hans hjá Real rennur út um mánaðarmótin.
Hinn 28 ára gamli Khedira hefur verið orðaður við mörg félög undanfarna mánuði eftir að ljóst var að hann myndi yfirgefa herbúðir Real Madrid.
Khedira spilaði með Stuttgart áður en hann gekk til liðs við Real Madrid árið 2010.

Þessi þýski landsliðsmaður hefur uninið alla stærstu titlana á Spáni með Real Madrid.