banner
   mið 09. júní 2021 20:15
Brynjar Ingi Erluson
Grealish líkt við Totti - „Ég lít mikið upp til hans"
Jack Grealish
Jack Grealish
Mynd: EPA
Enski landsliðsmaðurinn Jack Grealish er afar hrifinn af því að honum sé líkt við ítölsku goðsögnina Francesco Totti.

Totti spilaði allan sinn feril með Roma og vann ítölsku deildina einu sinni á þeim tíma. Hann vann til fjölda einstaklingsverðlauna og er talinn einn besti knattspyrnumaður Ítalíu frá upphafi.

Það sem þótti sérstakt með Totti er að hann spilaði með einu félagi allan sinn feril þó svo hann hafi nú verið nálægt því að fara til Real Madrid árið 2003.

Enskir miðlar hafa undanfarna daga verið að bera Grealish saman við Totti en hann er mikill aðdáandi hans. Grealish er 25 ára gamall og hefur verið samningsbundinn Aston Villa allan sinn feril en fór þó eitt tímabil á lán til Notts County.

„Totti var ótrúlegur leikmaður. Það að hann spilaði með einu félagi allan ferilinn, það er ótrúleg hollusta sem hann sýndi félaginu," sagði Grealish.

„Ég ólst upp við að horfa á hann spila og ég lít mjög mikið upp til hans," sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner