Fotbolti.net
09.09.26 - 21:44
Brynjar Ingi Erluson

Arteta: Klúðruðum svo mörgum góðum færum

Mikel Arteta hefði viljað stærri sigur miðað við færin sem Arsenal fékk

Mikel Arteta hefði viljað stærri sigur miðað við færin sem Arsenal fékk

Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, segir það vera algera synd að liðið hafi ekki skorað fleiri mörk í 1-0 sigrinum á Napoli á Diego Armando Maradona-leikvanginum í Meistaradeildinni í kvöld.
Meistaradeildin: Glæsimörk tryggðu ensku liðunum sigur - Meistararnir skoruðu sex
TENGT EFNI

Meistaradeildin: Glæsimörk tryggðu ensku liðunum sigur - Meistararnir skoruðu sex

Arsenal hafði mikla yfirburði og hefði hæglega getað skorað fleiri mörk. Martin Ödegaard tryggði liðinu þó sigurinn undir lokin með þrumuskoti utan teigs í stöngina og inn.

Arteta var ánægður með frammistöðuna en fannst sínir menn eiga að nýta færin betur.

„Þessi þrjú stig voru fyllilega verðskulduð. Úrslitin gefa kannski ekki rétta mynd af frammistöðunni því liðið var stórkostlegt. Við sýndum mikil gæði í tilraunum okkar til að brjóta þá niður en það var synd hvað við klúðruðum mörgum frábærum færum. Á öðrum degi hefði sigurinn orðið stærri,“ sagði Arteta.

Ödegaard hefur farið frábærlega af stað á tímabilinu og Arteta hrósaði fyrirliðanum.

„Martin leggur sitt af mörkum og skorar mörk sem ráða úrslitum. Það er nákvæmlega það sem við viljum frá sóknarsinnuðu leikmönnunum okkar, að þeir geti skipt sköpum. Það gerði hann í dag.“

„Við hefðum samt átt að klára þetta fyrr miðað við færin sem við sköpuðum,“
sagði Arteta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.