09.09.26 - 20:15
Magnús Atlason
Venni: Náðu að pinna okkur niður
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Njarðvík og Þróttur áttust við í fyrri viðureign sinni í umspili Lengjudeildarinnar. Þróttur vann þá sterkan 1-0 útisigur á Njarðvíkingum. Fótbolti.net var að sjálfsögðu á staðnum og náði tali af Sigurvini Ólafssyni eftir leik.
Lestu um leikinn: Njarðvík 0 - 1 Þróttur R.
"Ég er auðvitað mjög ánægður með úrslitin og að labba héðan af þessum mjög erfiða útivelli með 1-0 forystu, þannig séð í hálfleik í þessu einvígi."
Þróttarar komust yfir í upphafi leiks með marki frá Sigurði Agli Egilssyni. Aron Snær Ingason lagði upp markið en þeir tengdu vel í leiknum í dag.
"Ég ætla ekkert að taka neina menn sérstaklega út fyrir sviga en þetta var auðvitað æðislegt mark, og Stefán (Þórður Stefánsson) á nú stóran heiður líka í að búa þessa opnun til. Aron svo með frábæra fyrirgjöf og Siggi klárar vel."
Njarðvík bönkuðu fast undir lok leiks. "Varstu stressaður á hliðarlínunni undir lok leiks?"
"Jájá, þeir hentu öllu fram og náðu að pinna okkur niður, sem ég var pínulítið ósáttur við."
"Pínu vonbrigði að lenda í því en mikið hrós á strákana að standa af sér storminn."
Sér Venni seinni leikinn einhvernveginn öðruvísi fyrir sér?
"Já að einhverju leyti, auðvitað hefur gras og vindur áhrif. Ég veit svosem ekki hvernig veðrið verður á sunnudaginn. Það breytist ekki það að þetta verður erfitt."
Sjáðu viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.