Fotbolti.net
09.09.26 - 14:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Orðar Karl Ágúst við Val og ÍA

Orðar Karl Ágúst við Val og ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, hefur átt gott tímabil. Hann er fæddur árið 2007 og vakti fyrst athygli árið 2022 þegar hann kom við sögu í níu leikjum með HK í Lengjudeildinni.

Kantmaðurinn lék 19 leiki í Lengjudeildinni, byrjaði 14 þeirra, skoraði sex mörk og lagði upp þrjú samkvæmt tölfræði Sofascore. Sjötta markið kom gegn Fylki í 22. umferðinni um liðna helgi.

Karl Ágúst er unglingalandsliðsmaður sem á að baki 20 leiki fyrir yngri landsliðin og í þeim hefur hann skorað tvö mörk.

Hann verður í eldlínunni þegar HK tekur á móti Fylki í Kórnum í kvöld en liðin mætast í fyrri leik undanúrslitanna í Lengjudeildarumspilinu. Sá leikur hefst klukkan 19:15.
Spennandi leikmenn til að fylgjast með í umspilinu í Lengjudeildinni
TENGT EFNI

Spennandi leikmenn til að fylgjast með í umspilinu í Lengjudeildinni

Í hlaðvarpsþættinum Innkastinu hér á Fótbolta.net sagði Kári Snorrason frá því að ÍA og Valur væru á meðal félaga sem fylgjast með Karli Ágústi.

Framtíð hans gæti farið eftir því hvort HK komist upp um deild eða ekki. Hann er samningsbundinn HK út 2028.
Orðar Karl Ágúst við Val og ÍA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - KR hatar gras og Blikar bulla

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.