Bruno Fernandes skoraði tvívegis í 4-0 sigri portúgalska landsliðsins á Ísrael í kvöld en seinna markið var afar glæsilegt.
Fernandes gerði fyrra markið á 42. mínútu með góðu skoti úr teignum eftir fyrirgjöf Joao Cancelo.
Þegar mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma í síðari hálfleik gerði hann fjórða mark liðsins með föstu skoti fyrir utan teig og upp í samskeytin.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan.
Seinna markið hjá Fernandes
Athugasemdir