27.11.26 - 11:57
Elvar Geir Magnússon
Þunnskipaðir Bæjarar verða án Olise

Michael Olise og Harry Kane eru báðir meiddir.

Mynd: EPA

Michael Olise og Harry Kane eru báðir meiddir.

Mynd: EPA
Þýskalandsmeistarar Bayern München eru afskaplega þunnskipaðir sóknarlega um þessar mundir. Stjórinn Vincent Kompany hefur staðfest að Michael Olise muni missa af leiknum gegn Hamburg í Bundesliga vegna meiðsla á fæti.
Meiðsli franska landsliðsmannsins eru ekki sögð alvarleg en hann meiddist líkt og markahrókurinn Harry Kane í 1-1 jafntefli gegn Köln í síðustu viku.
Kane hefur gengist undir aðgerð vegna slitinna liðbanda í ökkla og er búist við að hann verði frá í um þrjá mánuði.
Þar sem enginn hreinræktaður sóknarmaður er tiltækur hjá Bæjurum setti Kompany miðjumanninn Konrad Laimer í sóknina gegn Lille en sú tilraun gekk illa.

TENGT EFNI
Evrópa um helgina - Þrír leikir í kvöld
Þetta er þungt högg fyrir félagið sem sópaði til sín titlum í Þýskalandi á síðustu leiktíð. Liðið tapaði gegn Lille, fyrsta ap þess í Meistaradeildinni á tímabilinu.
Bæjarar eru í öðru sæti í þýsku deildinni, tveimur stigum á eftir Borussia Dortmund, fyrir leikinn gegn Hamborg á morgun.
Bæjarar eru í öðru sæti í þýsku deildinni, tveimur stigum á eftir Borussia Dortmund, fyrir leikinn gegn Hamborg á morgun.
Bundesliga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Dortmund | 10 | +10 | 24 |
| 2 | Bayern | 10 | +20 | 22 |
| 3 | Freiburg | 10 | +11 | 22 |
| 4 | RB Leipzig | 10 | +18 | 21 |
| 5 | Leverkusen | 10 | +7 | 19 |
| 6 | Werder | 10 | +6 | 18 |
| 7 | Frankfurt | 10 | -4 | 15 |
| 8 | Stuttgart | 10 | 0 | 13 |
| 9 | Elversberg | 10 | -2 | 13 |
| 10 | Augsburg | 10 | +2 | 12 |
| 11 | Hoffenheim | 10 | -2 | 12 |
| 12 | Hamburger | 10 | -14 | 12 |
| 13 | Mainz | 10 | -3 | 10 |
| 14 | Köln | 10 | -4 | 10 |
| 15 | Paderborn | 10 | -7 | 10 |
| 16 | Schalke 04 | 10 | -6 | 7 |
| 17 | Union Berlin | 10 | -18 | 7 |
| 18 | Gladbach | 10 | -14 | 4 |