Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Á spítalanum í yfir 200 daga – Hildur gladdi Lilju Dögg og fjölskyldu
Með Hildi á myndinni er Guðbjörg, móðir Lilju.
Með Hildi á myndinni er Guðbjörg, móðir Lilju.
Mynd: Gleðjum Saman
Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir heimsótti á dögunum Lilju Dögg á Barnaspítala Hringsins og gaf henni áritaða Madrid CFF treyju, en Hildur spilar með spænska liðinu.

Gleðjum Saman er góðgerðarverkefni sem Orri Rafn Sigurðarson sér um og hafa alls 53 treyjur verið gefnar af íþróttamönnum og konum til einstaklinga til að gleðja þá.

Úr færslu á Facebook
Lilja Dögg er 17 ára gömul stúlka frá Ólafsvík. Hún greindist með sjaldgæfa, ágenga tegund hvítblæðis sem kallast AML og ALL. En afar sjaldgæft er að greinast með þessar tvær tegundir á sama tíma. Undanfarnir mánuðir hafa verið ein rússíbanareið fyrir Lilju og fjölskyldu hennar þar sem hvert höggið hefur komið á eftir öðru. Lilja hefur verið á spítalanum í yfir 200 daga en á þeim tíma hefur hún þurft að ganga í gegnum allskonar meðferðir, aðgerð og óvissu. Lilja lamaðist fyrst fyrir neðan mitti í miðri lyfjameðferð og færðist sú lömun út í hendur hennar með tímanum.

Að sjá kraftinn og hugrekkið sem að Lilja Dögg sýnir er aðdáunarvert. Hún er gríðarlega sterkur karakter og ætlar sér að vinna sigur í þessari erfiðu baráttu.

Framundan er mikil óvissa og krefjandi verkefni fyrir Lilju og fjölskyldu hennar. Svona verkefni taka á líkamlega, andlega og kostnaðurinn sem fylgir því er mikill.

Viljum við í Gleðjum Saman því benda á styrktarreikning Lilju Daggar sem er á nafni Guðbjargar móður hennar.

Styrktarreikningur:
Kt:091280-5239
Rkn: 0123-15-245667


Slapp
banner
banner