Fotbolti.net
09.07.26 - 23:26
Ívan Guðjón Baldursson

Alli Jói: Ég er ekki það hrokafullur

Auglýsing
Alli Jói.

Alli Jói.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, þjálfari Þórs/KA, var kátur eftir nauman sigur gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deildinni í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór/KA 1 - 0 Grindavík/Njarðvík
Margrét Árnadóttir náði forystunni fyrir heimakonur snemma leiks og læstu Akureyringar hurðinni eftir það.

Heimakonur vörðust mjög vel gegn sprækum gestum af Reykjanesinu sem tókst ekki að skora, svo lokatölur urðu 1-0.

„Ég er mjög ánægður með að hafa unnið í dag. Við byrjuðum betur og náðum í mark snemma en eftir það fannst mér þær vera ofan á. Mér fannst þær vera orkumeiri allan leikinn en viljinn í liði Þór/KA til að verja markið sitt er það sem vinnur leikinn," sagði Alli Jói eftir lokaflautið.

Þór/KA er í harðri fallbaráttu, með 9 stig eftir 10 umferðir. Þetta var annar sigur liðsins í röð eftir hörmulega byrjun á tímabilinu.

„Arna Sif er frábær leikmaður sem kann þetta upp á 10,5 en það voru fleiri leikmenn sem voru að henda sér fyrir skot og hjálpast að að verja markið okkar. Þetta er eitthvað sem hefur verið til fyrirmyndar hjá okkur í síðustu leikjum, þetta er þriðji leikurinn í röð þar sem við fáum ekki á okkur mark og það er jákvætt.

„Við höfum tapað einhverjum leikjum í sumar sem við áttum ekki endilega að tapa og mögulega í dag þá unnum við leik sem hitt liðið stjórnaði kannski meira. Ég veit ekki hvort ég ætti endilega að segja að við eigum ekki skilið að vinna því að við fáum líka færi til að skora fleiri mörk en ég er ekki það hrokafullur að segja að við höfum stjórnað allri umferð."
Arna Sif er frábær leikmaður sem kann þetta upp á 10,5 en það voru fleiri leikmenn sem voru að henda sér fyrir skot og hjálpast að að verja markið okkar.

Arna Sif er frábær leikmaður sem kann þetta upp á 10,5 en það voru fleiri leikmenn sem voru að henda sér fyrir skot og hjálpast að að verja markið okkar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.