Jóhann Kristinn: Glórulaust löng pása í mótinu

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta var skrýtinn leikur,“ sagði Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar, eftir 7-3 tap gegn i FH í Kaplakrika fyrr í kvöld.
„Það gekk margt upp hjá okkur í fyrri hálfleik sem við ætluðum að gera en svo tók leikmaður yfir og ég held hún hafi sett þrennu á einhverjum fimm mínútum eða eitthvað og við réðum ekkert við hana og hún var bara stjórnlaus á vellinum og þær bara, því miður, runnu á lyktina og við urðum aðeins of litlar í okkur og þegar að þetta öfuga FH lið finnur blóðbragð þá fara þær bara inn og slátra og þær gerðu það svo sannarlega í dag,“ hélt hann svo áfram.
Þróttur komst í 2-0 eftir 20 mínútur og þetta leit ágætlega út framan af og aðspurður hvað leikplanið var komandi inn í leikinn segir hann:
„Við þurftum náttúrulega að vita hvernig leikur þetta yrði, við vissum að þær myndu skvetta honum mjög agressívt inn fyrir og þær eru með marga hlaupara og taka sénsa, þannig að við ætluðum að reyna að koma í veg fyrir það og nota plássið sem myndi myndast aftarlega hjá þeim á móti.“
Fram að leiknum í dag voru Þróttarar búnir að fá á sig aðeins níu mörk, næstminnst allra liða og fá svo á sig sjö mörk í dag. Var það eitthvað sérstakt sem fór úrskeiðis?
„Við erum að spila við heitasta liðið á landinu og það er sárt að horfa í það að fá á okkkur svona rosalega mörg mörk af því að við erum búnar að vera mjög öflugar og ég bara tek fund í þessari glórulaust löngu pásu í mótinu þar sem að ég fer yfir tölfræði og við erum að skoða tölfræði saman og það er greinilega að ég hef ekki matreitt það vel að sýna þeim hvað við vorum öflugar varnarlega og hvað vantaði að bæta í sóknarlega af því að það fór illa í dag og við höfum kannski sofið á verðinum.“
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.



