26.08.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Vilja stjarnfræðilega upphæð og Liverpool hefur ekki lagt fram tilboð

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Liverpool hefur áhuga á því að fá Ismaila Sarr í sínar raðir frá Crystal Palace og hefur Liverpool rætt við Palace um möguleikann á að fá hann. The Athletic greinir frá.
Liverpool vill fá hægri kantmann inn í hópinn en á þessum tímapunkti eru ekki miklar líkur á því að sá leikmaður verði Sarr.
Viðræðunum í dag fylgdi ekki tilboð, Crystal Palace vill ekki selja og segir að það þurfi „stjarnfræðilega upphæð" til að losa Sarr. Á meðan Liverpool er með önnur skotmörk er ólíklegt að félagið leggi fram tilboð sem Palace er tilbúið að samþykkja.
Ekki er tekið fram hver upphæðin er sem Palace vill fá en fyrr í sumar hefur verið sagt frá því að félagið vilji fá yfir 50 milljónir punda fyrir Senegalann sem Galatasaray hefur reynt að kaupa.

TENGT EFNI
Liverpool skiptir um skotmark og ætlar sér Sarr
Sarr var ekki í hóp Palace gegn Everton um liðna helgi. Hann á þrjú ár eftir af samningi við félagið. Hann var besti leikmaður á síðasta tímabili og sá markahæsti þegar liðið vann Sambandsdeildina.
Það yrði erfitt fyrir Palace að finna mann í staðinn fyrir hann á þessum tímapunkti í glugganum, það er þó til sú upphæð sem Palace myndi samþykkja, en hún er hærri en hún hefði verið fyrr í sumar þar sem stutt er í að glugginn lokar.
Liverpool hefur reynt að kaupa Yankuba Minteh frá Brighton en án árangurs til þessa.
Ásamt Minteh hefur Liverpool horft til Bradley Barcola hjá PSG. Félagið gæti einnig horft til William Gomes hjá Porto, Ibrahim Mbaye hjá PSG, Pedro Neto hjá Chelsea, Haissem Hassan hjá Celtic og jafnvel Brahim Díaz hjá Real Madrid.