þri 09. ágúst 2022 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Stefán Teitur í liði vikunnar í Danmörku
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Teitur Þórðarson er mikilvægur hlekkur í sterku liði Silkeborg sem hefur farið vel af stað á nýju deildartímabili í efstu deild í Danmörku.


Hann hefur verið í byrjunarliðinu fyrstu fjóra leiki tímabilsins og gaf hann stoðsendingu í síðustu umferð, 3-1 sigri gegn Álaborg.

Stefán Teitur átti mjög góðan leik gegn Álaborg og hefur verið valinn í opinbert lið vikunnar hjá sænsku deildinni, sem má sjá hér fyrir neðan. 

Silkeborg er með tíu stig eftir fjórar umferðir, tveimur stigum eftir toppliði Nordsjælland sem er með fullt hús stiga.

Stefán Teitur, 23 ára, skoraði tvö og lagði upp tvö í 28 deildarleikjum á síðustu leiktíð.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner