Fotbolti.net
09.08.26 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Jón Þór staðfestir að Árni Snær sé í fríi - Var að gifta sig

Fótbolti.net óskar Árna til hamingju með giftinguna.

Fótbolti.net óskar Árna til hamingju með giftinguna.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nú er að hefjast leikur Stjörnunnar og Keflavíkur í Bestu deildinni en athygli vekur að aðalmarkvörður Garðbæinga, Árni Snær Ólafsson, er ekki í leikmannahópnum.

Jón Þór Hauksson þjálfari Stjörnunnar staðfesti í viðtali við Sýn Sport Ísland að hann hafi fengið frí frá leiknum. Fótbolti.net hafði greint frá því að Árni hafi verið að gifta sig og fengið leyfi til að taka sér frí.

Varamarkvörðurinn Darri Bergmann Gylfason stendur því milli stanganna og spilar sinn fyrsta leik í Bestu deildinni. Darri er 25 ára gamall og hefur undanfarin ár leikið með Augnabliki, varaliði Breiðabliks, í neðri deildunum en gekk í raðir Stjörnunnar fyrir þetta tímabil.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Keflavík
Þorri Mar fer á bekkinn en Guðmundur Kristjáns fór af velli meiddur gegn Val og er þá ekki á skýrslu. Ari Leifs byrjar sinn fyrsta leik fyrir Stjörnuna, Bjarki Hauks byrjar líka.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.17+4244
2Fram17+1437
3KR17+2236
4Breiðablik17+829
5Keflavík17-522
6Valur17-719
7ÍA17-819
8Stjarnan17-1118
9ÍBV17-916
10KA17-1115
11Þór17-2415
12FH17-1114
Darri Bergmann Gylfason

Darri Bergmann Gylfason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.