„Mun breyta mjög miklu fyrir okkur að vera með hann allt tímabilið"

Úlfur Ágúst verður allt tímabilið með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristján Flóki er uppalinn FH-ingur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sýndi seinni part móts hversu öflugur leikmaður hann er

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlutverk Grétars minnkaði þegar leið á tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Gauti er mættur aftur í Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Borg yfirgaf FH í lok tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úlfur Ágúst verður allt tímabilið með FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ákveðið var a endursemja ekki við Kristján Flóka Finnbogason, Grétar Snæ Gunnarsson og Arnór Borg Guðjohnsen. Hægri bakvörðurinn Birkir Valur Jónsson fékk nýjan samning og Arnór Gauti Úlfarsson snýr aftur í Kaplakrika, kemur frá Grindavík.
Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, fyrir helgi.
Þið eruð að missa tvo FH-inga, Grétar kom frá Haukum en nokkuð ungur, í honum og Kristjáni Flóka. Hvernig horfir jafnvægið varðandi FH-inga í hópnum? Eruð þið að missa FH hjarta úr hópnum?
„Við erum að missa tvö FH hjörtu úr hópnum, engin spurning. Flóki og Grétar eru tveir miklar FH-ingar, Grétar er í mínum bókum FH-ingur. Þetta eru aldrei auðveldar ákvarðanir, en þetta er eitthvað sem við töldum réttast í stöðunni."
„Það fækkar um einn FH-ing ef við horfum á það þannig, Arnór Gauti kemur inn á móti. Auðvitað viljum við vera með eins mikið af uppöldum leikmönnum og við getum. Svo er það líka þannig að við erum með leikmenn sem hafa verið hér í þónokkuð langan tíma. Sem dæmi Ísak Óla, Birkir Valur er búinn með tvö tímabil, Kjartan Kári er búinn að vera lengur og Tommi (Tómas Orri) búinn með tvö tímabil. Þetta eru leikmenn sem eru komnir með góða tilfinningu fyrir félaginu og ég lít á sem FH-inga í dag, þó svo að þeir geti verið eitthvað annað líka. Ég hef því ekki stórar áhyggjur af því."
„Við erum að missa tvo stóra pósta úr klefanum og svo náttúrulega Arnór Borg líka. Þetta eru skörð, en við teljum okkur geta fyllt þau, að mestu leyti allavega, með því sem við erum með."
„Svo erum við á sama tíma að skoða markaðinn."
Átti mjög stóran þátt í þessum öfluga kafla okkar
Birkir Valur fékk nýjan samning, það voru sögur um það að hann væri ekki stór hluti af ykkar plönum síðasta vor, hann gæti farið eða verið í takmörkuðu hlutverki. Afsannaði hann skoðanir ykkar á sér?
„Hann var ekkert alltaf í liðinu, hvorki á undirbúningstímabilinu né fyrri part Íslandsmótsins, var inn og út úr liðinu."
„En þarna ertu með dæmi með leikmann sem hélt áfram og sýndi seinni part móts hversu öflugur leikmaður hann er. Að mínu viti var hann frábær seinni hluta mótsins þegar við fórum að sækja stig. Hann átti mjög stóran þátt í þessum öfluga kafla okkar."
Birkir Valur byrjaði Íslandsmótið í byrjunarliðinu, meiddist og kom svo af fullum krafti inn í lið FH í júlí og spilaði vel seinni hlutann.
Fá Úlf inn og ungir leikmenn gætu fengið stærri hlutverk
Er eitthvað ljóst núna í hvaða stöðum þið viljið styrkja hópinn?
„Nei, í sjálfu sér ekki. Við fáum Úlf (Ágúst Björnsson) til baka í janúar, klárar skólann í Bandaríkjunum um jólin. Það mun breyta mjög miklu fyrir okkur að vera með hann, bæði allt tímabilið og líka á undirbúningstímabilinu."
„Það er ekkert núna sem við horfum í að þurfi bráðnauðsynlega. Það var fullt af ungum leikmönnum sem fengu mínútur í sumar. Oftast er það þannig með unga leikmenn að þeir taka framfarir milli ára, við horfum á að þeir verði tilbúnir í stærra hlutverk hjá okkur á næsta ári. Við erum alveg rólegir akkúrat núna á félagaskiptamarkaðnum."
Úlfur Ágúst er öflugur sóknarmaður sem hefur undanfarin ár misst af upphafi Íslandsmótsins og lokakaflanum þar sem hann hefur verið í námi í Bandaríkjunum.
Skýrist betur í næsta mánuði
Hafa komið einhver tilboð í ykkar leikmenn?
„Nei, ekkert komið ennþá. Það gerist væntanlega ekkert stórt eða mikið fyrr en þessar deildir í Skandinavíu klárast. Sænska deildin klárast í lok nóvember, norska deildin í byrjun desember og danska deildin fer í hlé um miðjan desember. Við erum að horfa meira í desember hvort það komi einhver raunverulegur áhugi að utan í okkar leikmenn."

Kristján Flóki er uppalinn FH-ingur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sýndi seinni part móts hversu öflugur leikmaður hann er

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hlutverk Grétars minnkaði þegar leið á tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Gauti er mættur aftur í Grindavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Borg yfirgaf FH í lok tímabils.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
