Fotbolti.net
09.11.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Siggi Raggi vann titilinn en verður ekki áfram í Færeyjum

Siggi Raggi vann titilinn en verður ekki áfram í Færeyjum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson verður samkvæmt heimildum Fótbolta.net ekki áfram þjálfari NSÍ Runavík í Færeyjum.

Siggi Raggi, sem er 52 ára, tók við liðinu fyrir um ári síðan og gerði liðið að Færeyjarmeisturum í ár. Það er annar meistaratitill félagsins í sögunni, en sá fyrri kom árið 2007.

KÍ Klaksvík hefur verið með talsverða yfirburði í Færeyjum síðustu ár og það kom talsvert á óvart að NSÍ skildi vinna titilinn.
Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga
TENGT EFNI

Formaður NSÍ: Yrði miður að halda ekki Sigga Ragga

Ásamt því að vinna titilinn komst NSÍ tvær umferðir áfram í Evrópu.

Siggi Raggi hefur verið orðaður við endurkomu í íslenska boltann, en hann var síðast þjálfari Keflavíkur 2023. Hann fór á fund hjá Fylki en búist er við því að Aron Baldvin Þórðarson taki við sem þjálfari Fylkis.
Náði frábærum árangri í Færeyjum.

Náði frábærum árangri í Færeyjum.

Canon

Mynd: NSÍ Runavík

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.