Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 10. janúar 2021 13:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Fékk aukaspyrnu fyrir að falla um sjálfan sig
Úr leik Exeter og Sheffield Wednesday.
Úr leik Exeter og Sheffield Wednesday.
Mynd: Getty Images
Sheffield Wednesday hafði betur gegn Exeter í þriðju umferð enska FA-bikarsins í gær.

Leikurinn endaði með 2-0 útisigri Sheffield Wednesday, úrslit sem komu ekki mikið á óvart í ljósi þess að Wednesday er í næst efstu deild og Exeter í fjórðu efstu deild.

Undir lok leiksins átti sér stað skondið atvik þegar leikmaður Sheffield Wednesday féll um sjálfan sig.

Dómarinn var greinilega ekki að fylgjast nægilega vel með því hann dæmdi aukaspyrnu á atvikið.

Hér að neðan má sjá myndband af þessu.


Athugasemdir
banner
banner
banner