16.09.26 - 20:58
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enski deildabikarinn: Magnaður endurkomusigur Brighton á Old Trafford

Maxim De Cuyper

Mynd: EPA

Tammy Abraham

Mynd: EPA

Carlos Alcaraz

Mynd: Everton

Maxim De Cuyper

Mynd: EPA
Brighton vann ótrúlegan endurkomusigur á Man Utd á Old Trafford í enska deildabikarnum í kvöld.
Man Utd byrjaði leikinn betur og hinn 19 ára gamli Shea Lacey kom liðinu yfir þegar hann skoraði með góðu skoti.
Mason Mount bætti öðru markinu við strax í kjölfarið. Marcus Rashford vann boltann og átti skot sem Jason Steele varði út í teiginn og boltinn barst til Mount sem skoraði.
Olivier Boscagli var nálægt því að minnka muninn þegar hann átti skot af löngu færi en boltinn fór rétt yfir markið. Malick Yalcouye komst síðan í mjög gott færi en skaut framhjá fjærstönginni.
Brighton tókst að minnka muninn undir lok fyrri hálfleiks þegar Jaouen Hadjam átti frábæra sendingu inn á teiginn á Charalampos Kostoulas sem setti boltann framhjá Karl Darlow.
Eftir rúmlega klukkutíma leik vann Luka Vuskovic Benjamin Sesko í loftinu. Boltinn barst til Pascal Gross sem fékk nægan tíma til að athafna sig og jafnaði metin.
Maxim De Cuyper fullkomnaði síðan endurkomu Brighton stuttu síðar með skoti úr teignum eftir undirbúning Kostoulas.
Tammy Abraham skoraði tvennu þegar Aston Villa lagði Coventry. Þá var Ross Barkley á skotskónum og lagði upp síðasta markið á Abraham. Ibrahim Mbaye var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn eftir komuna frá PSG í sumar og lagði upp markið á Barkley.
Carlos Alcaraz var hetja Everton þegar hann skoraði eina markið í sigri á Wolves aðeins þremur mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður.
Þá vann D-deildarlið Fleetwood frábæran sigur á Championshipliði Sheffield United.
Everton 1 - 0 Wolves
1-0 Carlos Alcaraz ('80 )
Fleetwood Town 1 - 0 Sheffield Utd
0-1 Rhys Norrington-Davies ('57 , sjálfsmark)
Coventry 1 - 3 Aston Villa
0-1 Tammy Abraham ('7 )
1-1 Victor Torp ('27 )
1-2 Ross Barkley ('40 )
1-3 Tammy Abraham ('59 )
Manchester Utd 2 - 3 Brighton
1-0 Shea Lacey ('8 )
2-0 Mason Mount ('10 )
2-1 Charalampos Kostoulas ('45 )
2-2 Pascal Gross ('65 )
2-3 Maxim De Cuyper ('70 )