Fotbolti.net
10.06.15 - 12:42
Magnús Már Einarsson

Abou Diaby farinn frá Arsenal (Staðfest)

Abou Diaby farinn frá Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Arsenal hefur staðfest að Abou Diaby muni fara frá félaginu þegar samningur hans rennur út í mánuðinum.
Diaby meiddist alls 42 sinnum á ferli sínum hjá Arsenal en hann kom til félagsins árið 2006.

Samtals var Diaby frá keppni í fjögur ár vegna meiðsla á tíma sínum hjá Arsenal.

Diaby var líkt við Patrick Vieira fyrst þegar hann kom til Arsenal.

Óhætt er að segja að Dibay hafi aldrei náð að standa undir þeim væntingum en þessi 28 ára gamli leikmaður hefur einungis leikið 124 deildarleiki á árum sínum Englandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.