Fotbolti.net
10.06.15 - 18:05
Arnar Geir Halldórsson

Andre Ayew til Swansea (Staðfest)

Nýr liðsfélagi Gylfa Sig

Nýr liðsfélagi Gylfa Sig

Canon

Mynd: Getty Images

Swansea City hefur gengið frá samningum við kantmanninn Andre Ayew um að leika með liðinu næstu fjögur árin.
Ayew kemur á frjálsri sölu frá Marseille en hann skoraði 10 mörk í 29 leikjum í frönsku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð. Marseille endaði í 4.sæti deildarinnar.

Þessi 25 ára gamli leikmaður á 62 landsleiki fyrir Gana og mun án nokkurs vafa styrkja framlínu Swansea á næstu leiktíð. Hann mun leika í treyju númer 10 og getur spilað bæði í fremstu víglínu og á báðum köntum.

Ayew er sonur Abedi Pele sem er goðsögn í heimalandinu og víðar í Afríku en hann var þrisvar sinnum á sínum ferli valinn besti leikmaður Afríku.

Eins og allflestir Íslendingar vita leikur Gylfi Þór Sigurðsson með Swansea og verður spennandi að sjá samvinnu þessara hæfileikaríku leikmanna á næstu leiktíð.

Heimild: Swansea City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.