10.06.15 - 17:47
Arnar Geir Halldórsson
Steve McClaren nýr stjóri Newcastle (Staðfest)

Mættur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Newcastle United

Mættur í ensku úrvalsdeildina

Mynd: Newcastle United
Steve McClaren mun stýra liði Newcastle í ensku úrvalsdeildinni næstu árin en þetta var tilkynnt á heimasíðu félagsins nú rétt í þessu.
Félagið rak John Carver í gær og hefur þessi ráðning legið lengi í loftinu. Steve McClaren var á dögunum látinn fara frá Derby County.
McClaren er einn reyndasti enski knattspyrnustjórinn um þessar mundir en hann var landsliðsþjálfari Englands um tíma og hefur einnig þjálfað ýmis félagslið. Ber þar helst að nefna Middlesbrough og Wolfsburg.
McClaren gerir þriggja ára samning með þeim möguleika að framlengja samninginn til átta ára en McClaren er 54 ára gamall.
„Það eru forréttindi að vera aðalþjálfari Newcastle United. Þetta er stórt félag með mikla sögu. St.James Park er eins og dómkirkja á laugardögum, eins konar tákn fyrir borgina\", sagði McClaren í kjölfarið af því að ráðningin var kynnt.
„Ég er spenntur að fá þetta tækifæri og ég veit hversu mikilvægt félagið er fyrir borgina og þennan landshluta. Félagið hefur beðið of lengi eftir titli og það er aðalmarkmiðið til lengri tíma.
McClaren er ekki í nokkrum vafa um að hann sé rétti maðurinn til að hefja Newcastle til vegs og virðingar á ný eftir dapra frammistöðu á síðustu leiktíð.
„Ég hef unnið til verðlauna á mínum þjálfaraferli og félag á stærð við Newcastle United á að safna titlum og enda í topp átta í deildinni\".

Heimild: Newcastle United