Livingston gekk í dag frá lánssamningi á Adam Lewis frá Liverpool. Lewis mun leika með skoska félaginu út komandi tímabil.
Lewis er 21 árs og lék með Amiens og Plymouth á láni á síðustu leiktíð.
Lewis er 21 árs og lék með Amiens og Plymouth á láni á síðustu leiktíð.
Adam er vinstri bakvörður sem fæddur er í Liverpool og er uppalinn hjá félaginu.
Hann á að baki sextán unglingalandsleiki fyrir England og hefur komið við sögu í einum bikarleik með aðalliði Liverpool á sínum ferli.
Sá leikur var gegn Shrewsbury tímabilið 2019/20.
Athugasemdir