Byrjunarlið argentíska landsliðsins gegn Íslandi er klárt. Goðsögnin Lionel Messi byrjar leikinn á meðal varamanna.
Lestu um leikinn: Argentína 3 - 0 Ísland
Gerónimo Rulli byrjar á milli stanganna með Agustin Giay, Facundo Medina, Lisandro Martínez og Nicolás Otamendi þar fyrir framan sig. Sá síðastnefndi ber fyrrirliðabandið í dag.
Á miðjunni eru þeir Exequiel Palacios, Giovani Lo Celso, Giulisno Simeone, Valentín Barco og Nicolás Paz en Paz hefur verið að glíma við smávæginleg meiðsli undanfarið. Mögulega mun hann skipta mínútum með Messi en Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, var búinn að gefa það út að Messi myndi fá mínútur gegn Íslandi.
Fremstu víglínu leiðir José Manuel López.
Á varamanabekknum ásamt Messi eru þeir Juan Musso, Sebastián Beltrán, Gonzalo Montiel, Rodrigo De Paul, Julián Álvarez, Cristian Romero, Nicolás González, Thiago Almada, Alexis Mac Allister, Lautaro Martínez, Enzo Fernández, Nahuel Molina, Nicolás Capaldo og Ignacio Ovando. Ekki amalegur bekkur.
Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum.
Byrjunarlið Argentína:
12. Gerónimo Rulli (m)
6. Lisandro Martínez
8. Valentín Barco
11. Giovani Lo Celso
14. Exequiel Palacios
17. Giuliano Simeone
18. Nico Paz
19. Nicolas Otamendi
21. José López
25. Facundo Medina
28. Agustín Giay
Byrjunarlið Ísland:
1. Elías Rafn Ólafsson (m)
2. Logi Tómasson
3. Daníel Leó Grétarsson
4. Guðlaugur Victor Pálsson
7. Hákon Arnar Haraldsson
8. Ísak Bergmann Jóhannesson
9. Orri Steinn Óskarsson (f)
11. Albert Guðmundsson
14. Andri Fannar Baldursson
19. Mikael Egill Ellertsson
23. Hörður Björgvin Magnússon


