Lionel Messi, einn besti fótboltamaður sögunnar, mun spila með Argentínu í vináttulandsleiknum gegn Íslandi sem fram fer klukkan 01:00 aðfaranótt miðvikudags að íslenskum tíma.
Lionel Scaloni, landsliðsþjálfari Argentínu, staðfesti á fréttamannafundi í kvöld að Messi muni taka þátt í leiknum. Óvíst sé þó hvort hann muni byrja en ákvörðun um það verði tekin eftir æfingu á eftir.
Messi, sem er 38 ára, meiddist aftan í læri með liði sínu Inter Miami en hefur jafnað sig af þeim meiðslum samkvæmt Scaloni.

Leikur Argentínu og Íslands mun fara fram í Auburn, Alabama. Þetta er aðeins í annað sinn sem A-landslið Íslands mætir Argentínu en hinn leikurinn var í lokakeppni HM 2018. Þar skildu liðin jöfn, 1-1, og var það Alfreð Finnbogason sem skoraði mark Íslands í leiknum. Hannes Þór Halldórsson varði eftirminnilega víti frá Messi í leiknum.
Leikurinn í Alabama verður síðasti leikur Argentínu í undirbúningi liðsins fyrir HM 2026 þar sem það á titil að verja, en Argentína er þar í riðli með Alsír, Jórdaníu og Austurríki.
Nær uppselt er nú þegar á leik Argentínu og Íslands, sem fer fram á aðalleikvangi Auburn háskólans, sem tekur um 88 þúsund manns í sæti.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!