Fotbolti.net
10.07.19 - 13:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Guðmunda Brynja slapp við alvarleg meiðsli

Guðmunda Brynja í leik með KR gegn Val.

Guðmunda Brynja í leik með KR gegn Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðmunda Brynja Óladóttir, leikmaður KR, vonast til þess að geta náð leiknum gegn Þór/KA í undanúrslitum Mjólkurbikars kvenna eftir 10 daga.
Guðmunda Brynja fór meidd af velli gegn Tindastól í 8-liða úrslitum bikarsins í lok síðasta mánaðar.

Óttast var að hún væri með slitið krossband en eftir myndatöku kom í ljós að svo er ekki.

„Ég fór í mynda­töku í fyrra­dag þar sem allt leit vel út og bæði kross­bönd voru heil og liðþófinn leit vel út. Ég hitti lækni í gær og mun taka því ró­lega á næstu dög­um en mark­miðið er að ná bikarleikn­um," sagði Guðmunda í samtali við Morgunblaðið.

KR kom sér upp úr botnsæti Pepsi Max-deildar kvenna með sigri gegn Stjörnunni á heimavelli í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.