05.10.26 - 15:54
Elvar Geir Magnússon
U21 liðið er lent í Færeyjum

Daníel Tristan hefur verið funheitur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tórsvöllur í Þórshöfn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Tristan hefur verið funheitur.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

U21 landsliðið er lent í Færeyjum þar sem það leikur mikilvægan leik gegn heimamönnum á þjóðarleikvangnum í Þórshöfn á morgun.
Eins og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum hafa flugsamgöngur verið óstabílar til Færeyja vegna veðurskilyrða. Upphaflega átti íslenska liðið að fljúga í gær en fluginu var frestað.
Það er snörp dagskrá í Færeyjum og íslenska liðið mun bráðlega taka síðustu æfinguna á keppnisvellinum áður en leikdagur rennur upp á morgun.

TENGT EFNI
Lúlli Gunn: Sýnir hversu sterkan hóp við höfum
Færeyjar unnu heimaleikinn gegn Íslandi en leikurinn á morgun er úrslitaleikur fyrir strákana okkar um annað sæti riðilsins.
Ísland þarf að vinna Færeyjar og treysta á að Sviss nái ekki að vinna Frakkland. Gangi það eftir tryggir Ísland sér sæti í umspilið og færist því nær því að komast á Evrópumótið í þriðja sinn í sögunni. Færeyjar eiga ekki lengur möguleika í riðlinum.
Hópurinn
Lúkas J. Blöndal Petersson - TSG 1899 Hoffenheim
Halldór Snær Georgsson - KR
Ásgeir Orri Magnússon - Keflavík
Hilmir Rafn Mikaelsson - SK Sigma Olomouc
Eggert Aron Guðmundsson - SK Brann
Hlynur Freyr Karlsson - Breiðablik
Benoný Breki Andrésson - Stockport County
Daníel Freyr Kristjánsson - Lyngby Boldklub
Helgi Fróði Ingason - Helmond Sport
Baldur Kári Helgason - FH
Nóel Atli Arnórsson - Aalborg BK
Haukur Andri Haraldsson - ÍA
Tómas Orri Róbertsson - FH
Kjartan Már Kjartansson - SK Brann
Júlíus Mar Júlíusson - Kristiansund BK
Daníel Tristan Guðjohnsen - Malmö FF
Freyr Sigurðsson - Fram
Hlynur Þórhallsson - Þróttur R.
Galdur Guðmundsson - KR
Viktor Bjarki Daðason - FC Köbenhavn
Amin Cosic - Viking FK
Davíð Helgi Aronsson - Lyngby Boldklub
Stígur Diljan Þórðarson - Víkingur R.