Fylkir 0 - 1 Breiðablik
0-1 Agla María Albertsdóttir ('9 )
Lestu nánar um leikinn.
Fylkir fékk Breiðablik í heimsókn í 16-liða úrsitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Liðin mættust í keppnina á síðasta ári og þá vann Fylkir óvæntan sigur.
0-1 Agla María Albertsdóttir ('9 )
Lestu nánar um leikinn.
Fylkir fékk Breiðablik í heimsókn í 16-liða úrsitum Mjólkurbikarsins í kvöld. Liðin mættust í keppnina á síðasta ári og þá vann Fylkir óvæntan sigur.
Agla María Albertsdóttir kom Breiðabliki yfir á 9. mínútu. „Sveindís Jane tekur innkast hratt á Berglindi sem er mætt í svæði inn í vítateig. Hún rennir boltanum fyrir þar sem Agla María er mætt og leggur boltann í netið. Flott viðbrögð hjá sóknarlínu Blika en Fylkisvörnin ansi hæg að bregðast við þarna," skrifaði Gylfi Tryggvason í beinni textalýsingu frá leiknum.
Á 37. mínútu vildi Fylkir fá vítaspyrnu þegar brotið virtist á sóknarmanni þeirra inn á vítateig, ekkert var dæmt.
Sjá einnig:
„Óskiljanlegt" að Fylkir fékk ekki víti
Mörkin urðu ekki fleiri í kvöld og hefndi því Breiðablik fyrir tapið fyrir rúmu ári síðan. Liðið er þar með fimmta liðið til að tryggja sig áfram í 8-liða úrslitin. Fyrr í kvöld tryggðu Valur, KR, FH og Selfoss sig áfram.
Athugasemdir