Fotbolti.net
11.09.26 - 14:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

„Hann langar mjög mikið að vera með á sunnudaginn"

„Hann langar mjög mikið að vera með á sunnudaginn"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Miðvörðurinn reynslumikli Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði Njarðvíkur, hefur verið að glíma við meiðsli og missti af fyrri leik liðsins í undanúrslitaeinvíginu gegn Þrótti í Lengjudeildarumspilinu.

Liðin mætast aftur á sunnudaginn og er Njarðvík marki undir eftir leik liðanna í Njarðvík á miðvikudag.
„Það verður að koma í ljós á æfingunni í dag hvort hann geti spilað. Hann ætlar sér að láta reyna á þetta á æfingunni í dag. Hann langar mjög mikið að vera með á sunnudaginn og ég held að hann sé bjartsýnni en við á að hann geti spilað."

„Hver sem spilar á sunnudaginn, hann verður að eiga toppleik, hvort sem það er Eiður Aron, Bjössi (Björn Aron), Arnar Helgi eða Grjóni (Sigurjón Már),"
segir Davíð Smári Lamude sem er þjálfari Njarðvíkur.

Leikurinn á sunnudag hefst klukkan 16:15 og fer fram á PEPSI vellinum í Laugardal.

Seinni leikirnir í umspilnu
sunnudagur 13. september
16:15 Þróttur R.-Njarðvík (PEPSI völlurinn)
19:15 Fylkir-HK (tekk VÖLLURINN)
„Hann langar mjög mikið að vera með á sunnudaginn"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.