Fotbolti.net
11.02.26 - 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bað Berbatov um að tala við Sesko

Benjamin Sesko og Michael Carrick.

Benjamin Sesko og Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Michael Carrick, sem stýrir nú Manchester United til bráðabirgða, bað Dimitar Berbatov um að ræða við Benjamin Sesko fyrir stuttu.

Sesko var keyptur til Man Utd frá RB Leipzig síðasta sumar. Stökkið hefur reynst stórt en Sesko er búinn að skora sjö mörk í 23 leikjum í öllum keppnum.
Berbatov þekkir vel pressuna að spila með Man Utd en hans gamli liðsfélagi, Carrick, fékk hann til að ræða við Sesko og gefa honum góð ráð.

„Við áttum jákvæðar samræður," sagði Berbatov sem ræddi við Sesko í síðustu viku.

„Hann verður mikill markaskorari og einn besti sóknarmaðurinn í framtíðinni."

Sesko hefur núna skorað tvö mikilvæg mörk að undanförnu, sigurmark gegn Fulham og jöfnunarmark gegn West Ham í gær.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.