Fotbolti.net
11.02.26 - 13:37
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Dawson vill að fyrrum liðsfélagi sinn taki við Tottenham

Keane á Kópavogsvelli sem þjálfari Maccabi Tel Aviv haustið 2023.

Keane á Kópavogsvelli sem þjálfari Maccabi Tel Aviv haustið 2023.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Michael Dawson, fyrrum fyrirliði Tottenham, hefur tjáð sig um stjóramálin hjá Tottenham eftir að Thomas Frank var rekinn í morgun.

Roberto De Zerbi, sem hætti sem stjóri Marseille í gær, er efstur á lista veðbanka, en Dawson kallar eftir því að Robbie Keane fái starfið. Keane stýrir Ferencvaros í Ungverjalandi, hefur verið þar í rúmlega ár og var þar á undan hjá Maccabi Tel Aviv.
Hver tekur við Spurs? - De Zerbi efstur hjá veðbönkum
TENGT EFNI

Hver tekur við Spurs? - De Zerbi efstur hjá veðbönkum

„Ég heyri alla tala um bráðabirgðastjóra. Ég veit ekki með það. Við vitum ekki hvort það verði ráðinn bráðabirgðastjóri. Ef það gerist þá hlýtur það að vera vegna þess að félagið er að bíða og þá hlýtur það að vera bið eftir Mauricio Pochettino (þjálfari bandaríska landsliðsins) sem tæki við eftir HM. Eða fara þeir núna og sækja stjóra?"

„Fyrir mitt leyti, þá er einn stjóri sem þekkir félagið, er með ástríðuna, spilaði fyrir félagið, elskar það og mun ná að koma öllum í rétta átt, ná að færa alla fram á við, og það er Robbie Keane,"
segir Dawson sem spilaði með Keane á sínum tíma.

Keane sagði nýlega að hann væri ánægður í Ungverjalandi og segist ekki dreyma um að starfa á Englandi. „Ég er heppinn því ég þarf ekki peningana, ég þénaði á meðan ég var leikmaður. Ég geri þetta ekki fyrir greiðsluna í lok mánaðar, hvatningin kemur allt annars staðar frá," sagði Keane nýlega.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Michael Dawson.

Michael Dawson.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.