Brunaútsala hjá Hömrunum - Tottenham og Man Utd slúður - Rashford til Real?
   mið 11. febrúar 2026 10:40
Elvar Geir Magnússon
Hver tekur við Spurs? - De Zerbi efstur hjá veðbönkum
Robbie Keane er nefndur.
Robbie Keane er nefndur.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Roberto De Zerbi.
Roberto De Zerbi.
Mynd: EPA
Þær fréttir bárust áðan að Thomas Frank hefði verið rekinn frá Tottenham. Í yfirlýsingu félagsins segir að stjórnin hafi talið að nauðsynlegt væri að gera breytingu.

Hver verður næsti stjóri liðsins? Skoðum hvað veðbankar segja nú strax eftir þessar fréttir.

Roberto De Zerbi, sem gerði frábæra hluti hjá Brighton, er efstur í veðbönkum en hann yfirgaf Marseille í morgun.

Margir stuðningsmenn Tottenham vilja fá Mauricio Pochettino aftur en hann þjálfar bandaríska landsliðið og ómögulegt að hann taki við fyrr en eftir HM í sumar.

Xavi fyrrum stjóri Barcelona, Marco Silva stjóri Fulham, Rúben Amorim fyrrum stjóri Manchester United og Oliver Glasner sem hættir með Crystal Palace í sumar eru einnig nefndir.

Robbie Keane, fyrrum leikmaður Tottenham, er einnig á blaði en hann stýrir ungverska liðinu Ferencvaros og hefur gert góða hluti. Áður stýrði hann Maccabi Tel Aviv.

William Hill veðbankinn:
Roberto De Zerbi - Evens
Mauricio Pochettino - 4/1
Xavi - 4/1
Robbie Keane - 7/1
Oliver Glasner - 10/1
Ruben Amorim - 11/1
Xabi Alonso - 12/1
Enzo Maresca - 14/1
Marco Silva - 16/1
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner